| Netorka | ||
Frá áramótum 2005/2006 hafa allir landsmenn átt kost á að velja sér af hvaða raforkusala þeir kaupa raforku. Raforkusala hefur frá þeim tíma ekki lengur verið bundin því orkufyrirtæki sem dreifir raforkunni á viðkomandi svæði, heldur opin öllum þeim sem hafa tilskilin leyfi. Þessi breyting leggur grunn að samkeppni á raforkumarkaði, raforkunotendur hafa nú val. Netorka hf. er hlutafélag í eigu raforkufyrirtækjanna og gegnir því hlutverki að vera sameiginlegt mæligagna- og uppgjörsfyrirtæki fyrir íslenskan raforkumarkað í markaðsvæddu umhverfi. Uppsetning Netorku á miðlægum gagnagrunni og einföldu skeytakerfi er einstök og fyrsta sinnar tegundar í heiminum í raforkuiðnaðinum. Kerfið tryggir að samskipti og uppgjör á íslenska raforkumarkaðnum verða í senn einfaldari, sveigjanlegri og skilvirkari en gerist hjá öðrum þjóðum. Netorka, í samvinnu við Ax hugbúnaðarhús, Logica, TM Software, Ráðorku ehf. og starfsmenn allra orkufyrirtækjanna, sá um uppsetningu og innleiðingu á upplýsingakerfunum. Söluaðilaskipti og uppgjör á íslenskum raforkumarkaði Netorka notar eftirfarandi hluta af Lettera kerfinu:
|